29 nóvember 2003

aðventan 

Jæja þá er aðventan gengin í garð. Heyrði þennan líka fallega klukknahljóm klukkan sex í Hallgrímskirkjuklukkunum (bý í Þingholtunum). Aðventusálmar hljómuðu í klukkunum.
Ég sit nú við og er að lesa aðferðafræðina. Er frekar svartsýn yfir þessu. Mikið lesmál fyrir bæði prófin sem ég tek og kenningar sem ég þarf að læra.
Börnin finna greinilega spennu og eru farin að vaka lengur á kvöldin og vakna á næturnar.
Svo fór leiðsla í sundur í eldhúsinu svo það verður að fá pípara og smið hérna eftir helgi að laga!!! Haldiði að sé tímasetning!
En maður hlítur að komast í gegnum þetta.
Ætli þetta sé ekki síðasta bloggið á þessari önn.
Þakka öllum fyrir samstarfið á önninni. þetta hefur verið mjög skemmtilegur tími þrátt fyrir að misserið hafi verið strembið í heildina.
Hafið það sem best á aðventunni og baráttukveðjur til þeirra sem eru í próflestri!

Media player 

Skoðaði myndupptökur sem staðnemarnir gerðu, sá reyndar enga mynd en heyrði hljóð. Skoðaði líka forsetaheimsóknina í listgreinahúsinu, heyrði allt en sá enga mynd. Veit ekki hvort þetta á að vera svoleiðis eða hvort græjan mín tekur það ekki?????

28 nóvember 2003

gsm blogg 

prófaði aftur gsm blogg en mér barasta tekst það ekki. Veit ekki hverju ég er að klúðra en ég held ég gefist upp. Er að falla á tíma í lestrinum.

Lokaritgerð 

Var að skrá mig á námskeið vegna lokaritgerðar á vorönn. Sniðugt að bjóða uppá þetta!
Ég hlakka svo til að klára prófin!
Baráttukveðjur til allra í próflestri

27 nóvember 2003

Námskeiðslok 

Ég var að lesa póstinn frá Salvöru. Já það er sko rétt að það er prófskrekkur kominn í mann. Mikið lesefni sem eftir á að lesa og margar kenningar og kallar og verk þeirra sem þarf að læra utanbókar!
Ég hef ekki verið nægilega dugleg og þolinmóð að prófa þessa tækni. Kíkti á gsm bloggið eða hvað það nú heitir en er ekki nógu "flink" við það.
Ég reyni að prófa eitthvað aftur fyrir 1. des!
Er að fara að hitta hópinn minn í kvöld og setja saman í Mediator verkefnið. Ætli maður lesi svo ekki fram á nótt eins og undanfarin kvöld. Maður týmir ekki að fara frá bókunum þegar ró og næði er.

26 nóvember 2003

Sit hér sveitt og les! 

Sit hérna límd við bækurnar og tölvuna og undirbý mig fyrir prófin. Sú litla sefur og þ.a.l. tímir maður ekki að fara frá! Situr bara og keppist við því maður veit ekki hversu langan tíma maður hefur út af fyrir sig við lærdóminn.
Kíkti á síður nemanna í staðnáminu og það var gaman að sjá hvað er í gangi þar. Skemmtileg verkefni hjá þeim mörgum.

24 nóvember 2003

Hópurinn 

Var að koma heim eftir að hafa hitt "hópinn".
Ótrúlega gott og gaman að hitta þessar góðu konur. Ég veit ekki hvar ég væri ef ég hefði ekki kynnst þeim og við hefðum hópað okkur svona saman.
Gaman að hittast svona og gefandi.

This page is powered by Blogger. Isn't yours?